245.is  

 

   

Forsíða

    

Eldri fréttir

    

Viðtöl og greinar

    

Þankabrot

    

Nýir Sandgerðingar

    

Aðsent efni 

    

Myndasafn 

    

Smáauglýsingar 

    

Sandgerðisdagar 

    

Um vefinn

    

Auglýsingaverð

    

Hafa samband

   

Leitarvél














 



 

 Þjónusta í Sandgerði  

   

Afþreying

   

Bankar

    

Bensínstöðvar

    

Bílaviðgerðir 

    

Dagvöruverslun

    

Ferðir/Flutningar

    

Félög

    

Gisting

   

Gjafavörur

    

Heilsa og útlit

    

Kirkjustarf

   

Menning og listir

    

Opinber þjónusta

    

Sjávarútvegur

    

Skólar

    

Söfn/Sýningar

    

Tölvur og Internet

    

Veitingahús/Salir

    

Vélsmiðja

    

Verktakastarfsemi


 Fréttir

Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

8.3.2010 08:53:19
Leit að björgunarbát norður af Sandgerði
Engin hætta á ferð - Svipmyndir frá leitinni


Svavar og Veigar leita hér að bátnum

Rétt fyrir klukkan 10 í gærmorgun var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út til leitar að gúmmíbjörgunarbát norður af Sandgerði, sem losnað hafði frá togskipinu Hring SH 153 frá Grundarfirði.

Ekki er vitað nákvæmlega hvenær báturinn losnað, en neyðarsendir úr björgunarbátnum fór að senda frá sér neyðarmerki eftir að báturinn sprakk upp í sjónum. Starfsmenn landhelgisgæslu Íslands hófu strax eftirgrennslan og var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út í kjölfarið á útkall F3>grænum forgangi þar sem að engin hætta var á ferð.

Sigurvon sendi stax út tvo tveggja manna hópa til leitar í fjörunni og stóð hún ekki lengi þar sem að annar hópurinn kom fljótt auga á bátinn á eyri fyrir neðan Kirkjubólsvöll.

Eftir stutta leit tók við önnur leit af neyðarsendi úr björgunarbátnum til að slökkva á honum og í framhaldi að koma bátnum úr fjörunni og til Sandgerðis.

Þar sem ekki var hægt að fara á bíl niður í fjöruna þurftu björgunarmenn að draga bátinn á handafli um 100 metra í stórgrýttri fjörunni í átt að golfvellinum.

Þegar þeirri vinnu var lokið tók við vinna við að koma bátnum úr fjörunni. Björgunarsveitin fékk afnot af traktorsgröfu frá Golfklúbbi Sandgerðis til að flytja bátinn úr fjörunni og upp að bíl. Gekk það mjög vel fyrir sig og var báturinn kominn í hús hjá Sigurvon um kl. 15°° í gær.

Fleiri myndir frá leitinni hér

www.sigurvon.is


Myndir: Smári/245.is | lifid@245.is
 



Prentvæn útgáfa

   
    Til baka